Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Dagþjónusta

Fjölbreytni samfélagsins að Sólheimum og virk þátttaka allra íbúanna er snar þáttur í meðferð og þroska hvers einstaklings. Með því að skynja samábyrgðina eykst sjálfsmat og sjálfstraust viðkomandi. Þjónustumiðstöð Sólheima er ábyrg fyrir þjónustu við íbúa Sólheima með sérþarfir og er faglegt starf undir stjórn, kennara, þroskaþjálfa og íþróttafræðings, auk tveggja þjónustufulltrúa. Miðstöðin er sú eina sinnar tegundar á landinu og starfar með öðrum áherslum en aðrir sem veita fötluðum þjónustu, en að sjálfsögu í samræmi við gildandi lög og reglugerðir. Þá er lögð mun meiri áhersla á atvinnu-, félags- og menningarmál en annars staðar þar sem unnið er með fólki með sérþarfir. Uppbygging atvinnu á Sólheimum hefur haft það að meginmarkmiði að skapa íbúum fjölbreytta, krefjandi og skapandi vinnu. Umhverfismál eru höfð í heiðri og að öll ræktun sé eingöngu með aðferðum lífrænnar ræktunnar, unnið sé með náttúrulegt hráefni og að endurvinnslu.


Dagþjónustan
rekur 6 vinnustofur; vefstofu, listasmiðju, smíðastofu, hljóðfærasmiðju og jurtastofu auk þjónustudeildar þar sem nokkrir íbúar stunda atvinnu við Sólheimabúið, í mötuneyti, við viðhaldsverkefni, ræstingar og símavörslu. Dagþjónusta gerir samninga við fyrirtæki um atvinnu og starfsþjálfun fyrir fatlaða íbúa.


Vinnustofur dagþjónustu :

Vefstofa
Framleiðir mottur auk dúka, taska og ýmiss annars handvefnaðar. Uppistaðan af hráefni vefstofu eru efnisafgangar, föt og sængurfatnaður. Hráefni berst vefstofunni bæði frá íbúum Sólheima sem og fyrirtækjum, félögum og einstaklingum.

    

Smíðastofa- og hljóðfærasmiðja
Í smíðastofu eru framleidd þroskaleikföng og skrautmunir auk ýmiskonar listhandverks. Uppistaðan af hráefni smíðastofu eru tréafgangar. Í hljóðfærasmiðju eru framleidd ýmis hljóðfæri, s.s. lýrur, vindhörpur, ásláttarhljóðfæri og þumalpíanó.

   

Listasmiðja
Listasmiðja er iðja/dagvist þar sem boðið er upp á einföld vinnuverkefni. Meðal þess sem unnið hefur verið að má nefna gerð korta og mynda úr endurunnum pappír og silki, vinna með ull, gerð ýmiskonar listaverka. 

Leirgerð
Í leirgerð eru framleiddir ýmis konar listmunir úr leir. Þar eru líka málaðar myndir og ýmsu fleiri sinnt sem hæfir getu og áhuga hvers og eins.

Kertagerð Sólheima
 

Framleiðsla Kertagerðar í dag:
Bývaxkerti en bývax er hrein náttúruafurð og unnin án notkunar kemískra efna.
Útikerti úr endurunnu vaxi.
Hefðbundin kerti unnin úr nýju parafíni.
 

Endurvinnsla
Útikertin sem eru unnin í Kertagerð Sólheima eru unnin úr kertafgöngum frá almenningi. Olís og Kertagerð Sólheima hafa með sér samstarf um söfnun kertaafganga. Almenningur getur safnað saman kertaafgöngum og komið til hvaða Olísbensínstöðvar sem er á höfuðborgarsvæðinu. Það má að sjálfsögðu koma með kertaafganga beint til kertagerinnar.

Sólheimar - Grímsnesi - 801 Selfoss - Sími 480 4400