![]() |
![]() |
![]() |
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
||
Menningarstarf
Á Sólheimum er haldið úti fjölbreyttu félags og menningarstarfi fyrir íbúana, þar sem reynt er að mæta þörfum sem flestra. Leitast er við að fatlaðir og ófatlaðir taki sameiginlegan þátt í þeim viðburðum sem í boði eru og hefur það reynst vel. Sólheimar er byggðahverfi sem telur tæplega 100 íbúa á öllum aldri og er því mikilvægt við skipulagningu félagsstarfs að taka mið af þörfum allra íbúanna. LeiklistarstarfiðLeiklistarstarf hefur verið stór þáttur í félagsstarfi allt frá stofnun Sólheima en Leikfélag Sólheima var stofnað árið 1931. Á hverju vori er sett upp leiksýning sem hefð er fyrir að sé frumsýnd á sumardaginn fyrsta. Æfingar leikfélagsins eru snar þáttur í félagsstarfi allan ársins hring.
Listsýningar
Fastir viðburðir og aðrar uppákomur í Félagslífinu
Í febrúar er hefð fyrir því að halda Þorrablót og 5. júlí ár hvert er afmælishátíð þar sem minning Sesselju Sigmundsdóttur er heiðruð. Þá er gjarnan notað tækifærið, og sú dagsetning notuð fyrir mikilvæga áfanga í starfseminni eins og að taka í notkun nýjar byggingar, eða taka skóflustungur að nýjum framkvæmdum á staðnum Einnig er staðið fyrir grillveislum, böllum, töðugjöldum, skemmtikvöldum, alþjóðlegum kvöldum þar sem erlendir starfsmenn og sjálfboðaliðar kynna lönd sín og menningu, námskeiðum af ýmsum toga, starfsmannadögum og mörgu fleiru. Þegar skemmtanir og uppákomur hafa verið haldnar að Sólheimum hefur verið leitað til skemmtikrafta og hljómlistarmanna sem hafa verið reiðubúnir að skemmta íbúum Sólheima endurgjaldslaust eða gegn mjög vægu gjaldi og erum við afar þakklát fyrir það. Einu sinni á ári koma Postularnir frá Selfossi og bjóða íbúum Sólheima á rúntinn á bifhjólunum sínum. Þetta mælist alltaf ákaflega vel fyrir og margar kitla pinnann. Menningarveisla Sólheima hefur verið haldin ár hvert yfir sumartímann frá 2006 þar sem fjölmargir viðburði hafa verið í boði, bæði listsýningar og tónleikar í Sólheimakirkju, svo eitthvað sé nefnt. Sjálfboðaliðar - skiptinemar Sólheimar hafa alla tíð stuðlað að búsetu erlendra sjálfboðaliða sem vilja kynna sér og upplifa samfélagið á Sólheimum og Ísland með þátttöku í daglegu lífi og atvinnu-, félags- og menningarlífi á staðnum. Segja má að sjálfboðavinna sé full vinna sem fólk innir af hendi sem sjálfboðaliðar við verkefni eða fyrir samtök sem vinna að almannaheill. Þjónustusviðið er afar breitt: Sjálfboðaliðar starfa á sviði félagsmála, fyrir aldraða og minnihlutahópa að verkefnum á sviði umhverfis- og menningarmála. Aðrir starfa að málum tengdum friði eða félagslegu réttlæti. Sólheimar taka nú þátt í tveimur alþjóðlegum ungmennaskiptaverkefnum sem miðast við ársdvalir ungmenna á erlendri grundu; AUS (Alþjóðleg ungmenna samskipti) og svokölluðu EVS verkefni UFE (Ungt fólk í Evrópu). Góð samvinna hefur skapast við þessi samtök. Alþjóðleg ungmennaskipti eru Íslandsdeild ICYE (International Cultural Youth Exchange) sem eru alþjóðleg samtök starfandi í 36 löndum. Samtökin eru rekin án hagnaðarsjónarmiða og að stærstum hluta í sjálfboðavinnu. Heimasíða Aus er www.aus.is og heimasíða Ungs fólks í Evrópu er www.ufe.is Ungt fólk í Evrópu er styrkjaáætlun á vegum Evrópusambandsins, veitir styrki til verkefna sem stuðla að því að minnka fordóma og auka umburðarlyndi. Allt ungt fólk á aldrinum 15 til 25 ára getur sótt um styrki. Þetta er tækifæri sem ungt fólk getur nýtt sér til að auka eigin þekkingu, þroska og sjálfstraust um leið og það kynnist fólki frá öðrum löndum. Eru venjulega fjórir til fimm sjálfboðaliðar á vegum þessara samtaka sem dvelja frá september, í eitt ár í senn, á Sólheimum. Það hefur þó undir það síðasta þurft að fækka þeim vegna skorts á húsnæði. Skipulag sjálfboðaliðamála var í meginatriðum með svipuðu sniði og árið á undan. Helstu breytingar eru að sjálfboðaliðarnir breyta ekki um vinnu á tveggja mánaða fresti eins og árið 2002-3 heldur vinna í 4 mánuði í senn á hverjum vinnustað. Þá fá þeir tækifæri til að skipta um vinnustað. Reynt er að hafa kerfið sveigjanlegt þannig að þeir mæti sem best þörf á vinnustöðunum. Komið var á fót stuðningsfjölskyldukerfi fyrir sjálfboðaliða á Sólheimum. Þetta á ekki að íþyngja fjölskyldunum heldur miklu frekar að vera skemmtileg menningartengsl. Sólheimar taka einnig þátt í verkefnum Veraldarvina, betur þekkt hér undir skammstöfuninni KVT, sem eru alþjóðasamtök sjálfboðaliða. KVT er skammstöfun á finnsku yfir samtök sem nefnast á ensku Service Civil International. Nú eru samtökin komin með fast aðsetur hér á landi og kalla sig Veraldarvini. Þessi samtök voru stofnuð í kjölfar heimstyrjaldarinnar síðari með það að markmiði að efla frið og samtakamátt í heiminum. Samtökin eru alþjóðleg og vinna þvert á öll landamæri. Síðastliðið sumarið 2003 komu tveir 14 manna hópar á þeirra vegum og dvöldu í tvær vikur í senn og unnu að ýmsum verkefnum tengdum umhverfismálum og skógrækt. Þetta er sjöunda árið sem sjálfboðaliðar frá KVT dvelja á Sólheimum. Sumarið 2004 koma þrír 15 manna hópar á Sólheima. Heimasíða Veraldarvina er www.wf.is Allt þetta fólk frá hinum ýmsu heimshlutum er ýmsum kostum búið og hefur ýmislegt fram að færa sem auðgar samfélagið jafnframt sem nærvera þeirra lífgar svo sannarlega litróf manna á milli. |
||
|
||