Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Um Sólheima

Sólheimar eru sjálfbært samfélag á fallegum stað í hjarta Suðurlands, í um það bil klukkutíma akstursfjarlægð frá Reykjavík. Þar búa og starfa saman um það bil 100 einstaklingar í skapandi, alþjóðlegu umhverfi með áherslu á umhverfismál, listræna vinnu og lífræna ræktun. Sólheimar voru stofnaðir af Sesselju H. Sigmundsdóttur (1902-1974) árið 1930 og byggja m.a. að nokkru á hugmyndafræði Rudolfs Steiner (1861-1925). Sólheimar eru fyrsti staðurinn á Norðurlöndum til að stunda lífræna ræktun (bio-dynamic) og eru jafnframt fyrsti íslenski aðilinn að alþjóðasamtökunum Global Eco-village Nework.

Sólheimar - Grímsnesi - 801 Selfoss - Sími 480 4400