Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Gisti- og heilsuheimilið Brekkukot

Brekkukot er opið árið um kring. Í boði er gisting í tveimur húsum Brekkukoti og Veghúsum samtals 33 rúm. Allir gestir hafa aðgang að útisundlaug og heitum potti. Í Brekkukoti eru 3 tveggja manna og 7 eins manns herbergi ásamt íbúð með 4 rúmum baðherbergi og eldhúskrók. Rúmgóð eldunaraðstaða auk vistlegrar sjónvarpsstofu og sólstofu, en snyrtingar eru sameiginlegar.

Í Veghúsum eru 6 tveggja manna herbergi með sérsnyrtingu og 2 íbúðir. Góð eldunaraðstaða og falleg rúmgóð stofa með stórum sólpalli og fögru útsýni. Gestir geta sjálfir séð um matseld að hluta eða öllu leyti en í boði er morgunverður , hádegisverður, kaffi og kvöldverður fyrir hópa ef óskað er. Brekkukot býður upp á glæsilega aðstöðu til funda, námskeiða og ráðstefnuhalds í Sesseljuhúsi og mismunandi byggingum á Sólheimum. Einnig er mjög góð aðstaða til margskonar veisluhalda svo sem stórafmæla, brúðkaupa og ýmiskonar samkvæma. Á boðstólum eru metnaðarfullar móttökudagskrár fyrir hópa sem má fá frekari upplýsingar um í kaflanum "Móttaka hópa". Sólheimar ráða vel við og hafa reynslu af móttöku stórra hópa sem smárra.

  

Sesseljuhús
Þann 5. júlí 2002 voru eitthundrað ár liðin frá fæðingu Sesselju Hreindísar Sigmundsóttur stofnanda Sólheima. Að því tilefni var Sesseljuhús formlega tekið í notkun. Sesseljuhús er vistmenningarmiðstöð. Þar er glæsileg aðstaða fyrir allt að 100 manns til fræðslu og fundarhalda.

Kaffihúsið Græna kannan
Græna kannan er kaffihús þar sem allar veitingar eru framleiddar úr lífrænt ræktuðu hráefni. Kaffihúsið Græna Kannan opnaði í maí 2001 og er staðsett í miðju byggðahverfisins við aðaltorg Sólheima.

Mötuneyti Sólheima
Mötuneyti Sólheima sér um hádegisverð fyrir íbúa Sólheima alla virka daga auk máltíða fyrir gesti gistiheimilisins.  Mötuneyti Sólheima veitti að jafnaði 4 einstaklingum með fötlun atvinnu- og starfsþjálfun

 Nærandi

Vorið 2008 tók til starfa nýtt bakarí og matvinnslufyrirtæki sem hlaut nafnið Nærandi. Í Næranda er bakað brauð og kökur fyrir Brekkukot og Völu. Nærandi hefur tekið yfir framleiðslu Sunnu á niðursuðuvörum auk þess að framleiða ýmsar spennandi nýjungar. Vörur Næranda má einnig nálgast í Frú Laugu www.frulauga.is og Versluninni Ygdrasill, Skólavörðustíg. 

Græn ferðaþjónust
Brekkukot hefur markað sér stefnu í anda Grænnar ferðaþjónustu og er fyrsta gistihúsið á Íslandi sem fékk opinbera viðurkenningu þar um. Sólheimar hafa í áratugi verið í fararbroddi í lífrænni ræktun og umhverfismálum og eru síðan 1997 meðlimur í samtökunum Global Eco-village Network, en þar eru samtök vistvænna samfélaga á jörðinni. Eftirfarandi er lagt til grundvallar í rekstri Brekkukots:

. að stuðla að umhverfisvernd samhliða aukinni ánægju af útivist
. að kynna gildi þess að neyta lífrænt ræktaðrar fæðu
. að vinna að kynningu á Sólheimum og þeirri hugmyndafræði sem byggt er á
. að stuðla að efnahags- og atvinnuuppbyggingu á Sólheimum
. að taka mið af kostnaði en hafa gæði ávallt í fyrirrúmi.

Gisti-og heilsuheimilið Brekkukot er sjálfstætt fyrirtæki, stofnað 1997. Brekkukot býður gistingu fyrir allt að 35 manns í tveim húsum Brekkukoti og Veghúsum. Brekkukot sér auk þess um rekstur og umsjón mötuneytis Sólheima, kaffihússins Grænu könnunnar, veitingarekstur, og funda, námskeiða og ráðstefnuþjónustu í Sesseljuhúsi.

Sölvi B. Hilmarsson er forstöðumaður Brekkukots.

Bókunarsímar Brekkukots eru: 898-4483 og 4804483. Netfang brekkukot@solheimar.is

Sólheimar - Grímsnesi - 801 Selfoss - Sími 480 4400