Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Sunna - lífræn ræktun
Sólheimar hafa verið kallaðir vagga lífrænnar ræktunar á Íslandi en Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir stofnandi Sólheima lagði stund á nám um lífræna ræktun í Þýskalandi og var merkur frumkvöðull á því sviði. Almennt er talið að upphaf lífrænnar ræktunar, ekki aðeins á Íslandi heldur líka á Norðurlöndum, hafi verið á Sólheimum. Sesselja var einnig mikill náttúruunnandi og á meðal þeirra fyrstu á Íslandi sem létu sig umhverfismál varða. Það er því sterk hefð fyrir umhverfisvitund á Sólheimum.

Sunna framleiðir lífrænt ræktað grænmeti í gróðurhúsum og útimatjurtagörðum. Lífrænt ræktað grænmeti frá Sunnu er selt til mötuneytis Sólheima, verslunarinnar Völu og á höfuðborgarsvæðinu. Lífræn ræktun byggir á að varðveita frjósemi jarðvegsins. Stunduð er skiptirækt til að viðhalda efnum í moldinni sem hver tegund þarfnast og minnka áhættu á sjúkdómum. Einungis eru notaðar lífrænar varnir við ræktunina. Notaður er húsdýraáburður, þörungamjöl og lífrænn áburður sem er unnin úr lífrænum úrgangi með safnhaugagerð.

Útlitsgallað grænmeti er notað í niðursuðuvöru og er þannig nýtt á sem bestan máta.
Framleiðsla Sunnu er vottuð af Vottunarstofunni Túni.

Helstu framleiðslutegundir:
Tómatar, agúrkur, paprika, gulrætur, kartöflur, kál og annað útiræktað grænmeti.

Forstöðumaður Sunnu er Valdimar Ingi Guðmundsson.

Afurðir Sunnu fást í  Versluninni Völu. Sími 480 4482 og 8964496. Netfang: sunna@solheimar.is

Sólheimar - Grímsnesi - 801 Selfoss - Sími 480 4400