Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Ölur

Skógræktarstöðin Ölur tók formlega til starfa 27. Apríl 1991. Ölur er sjálfstætt starfandi fyrirtæki í eigu Sólheima.  Ölur hefur tekjur sínar af föstum skógræktarsamningum, plöntusölu og annast starfsþjálfun fyrir fatlaða.

Skógræktarstöðin Ölur hefur vottorð frá vottunarstofunni Tún ehf, um að afurðir stöðvarinar teljist lífrænar samkvæmt ýtrustu stöðlum þar að lútandi.
Ölur státar af góðu úrvali af trjám, runnum og sumarblómum. Í Ölri leggjum við mikla áherslu á persónulega ráðgjöf og góða þjónustu.

Ölur hefur reynt að sérhæfa sig í ræktun á harðgerðum trjám og runnum og notar nær eingöngu sjálfsaflað Íslenskt fræ.  Við erum þeirrar skoðunar að lífrænt ræktað tré sé betra en hið ,,hefðbundna"því við erum yfirleitt með þroskaðra vefjakerfi og í alla staði eðlilegri plöntu. Einnig fylgir með sem bónus út í vistkerfið mikið örverulíf í rótarköggli og oft ánamaðkar, en þetta fylgir yfirleitt ekki plöntum ræktuðum með kemískum efnum. Margar plöntur ,sem eru ræktaðar upp með of miklum áburði,eru ekki með nógu þroskað rótarkerfi miðað við yfirvöxtinn. Þroski rótarkerfis lífrænt ræktaðrar plöntu hæfir yfirvextinum að öllu leyti. Slík planta er betur tilbúin til að halda áfram að vaxa og dafna í jarðveginum .

Hægt er að panta vörur og afgreiðslu utan auglýsts
opnunartíma í síma 4804441 og 694 3244
 

Forstöðumaður Ölurs er Særún Stefánsdóttir, garðyrkjufræðingur.

Sólheimar - Grímsnesi - 801 Selfoss - Sími 480 4400